08.02.2008 23:19:51 / muskat

Klipptur út úr áheyrnarprufum á Bandinu hans Bubba á Neskaupsstað

Ég var búinn að skrifa heil langan reiðipistil yfir þessu öllu saman og klikkaði svo á grundvallar atriðinu að gera copy áður en ég smellti á staðfesta þannig að ef að eitthvað misfærist þá gæti ég paste-að þessu aftur inná en nei gleymdi því og að sjálfsögðu datt þetta allt saman út :evil:

Það sem ég hefði viljað sleppa við var að á leiðinni til Neskaupsstaðar, nánar til tekið á Oddskarði var ég næstum búinn að bræða úr bílnum þar sem sauð á honum hvað eftir annað og var ég nánast ósofinn þennann sólahringinn.

Ég veit ekki hvort er verra að hafa verið klipptur út eða gengið ekkert sérlega vel eins og sumir. Ég hefði viljað vera aðvaraður að ég kæmi ekki fram í þættinum og hefði þá kannski verið mildari í þessum pistli en verst af öllu er tíminn sem í þetta fór, því ekki fæ ég hann til baka...

 

Yfir og Út,

Keli


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 01:09:35 / muskat

Wanted

Hef látið lítið á mér bera eftir að ég heyrði þetta í fréttatíma á gömlu gufunni!

http://slytherin.hex.is/tts/ragga/20071215/ae9083799041c3ac87d687a97fd30b5c.wav


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 01:38:34 / muskat

Fyrsta rjúpnaferð ársins.

Skrapp í göngutúr með Þorláki, yngsta bróður Sunju sem kom einnig með en hún ákvað að halda bílnum heitum á meðan. Keyrt var upp á Fjarðarheiði og svo afleggjarann í átt að Gagnheiðarhnjúk nyrðri. Göngutúrinn tók rúman einn og hálfann klukkutíma og sáum við bara tvær rjúpur en náðum þeim báðum. Það var margmenni á ferð allt í kringum okkur en heyrðum ekki skotið nema fimm sinnum og átti ég þrjú af þeim. Sú fyrri steinlá í fyrsta en þurfti tvö skot til að ná síðari rjúpunni niður til jarðar.

Barasta ágætist árangur hjá okkur.

Yfir & út.

Keli


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 15:55:07 / muskat

Bandið Hans Bubba

Púff, þá er það afstaðið.
Ég hefði kannski átt að hlusta á bílinn minn sem gaf mér hitamerki uppi á Oddskarði
og var tregur að kólna aftur sem varð til þess að við komum 20min of seint á Neskaupsstað.
Það voru 13 sem tóku þátt og 4 komust áfram en því miður var ég ekki einn af þeim.
Þetta var svona upp og niður hjá mér, fyrra erindið var fínt og viðlagið ágætt
en í seinna erindinu kom handskjálfti uppá 7,8 á rigter og datt líka úr sambandi
í eina til tvær sekúndur held ég. Ég er samt bara frekar ánægður með þetta allt saman og
skemmti mér barasta ágætlega. Mér fannst líka svolítið skondið þegar ég fór í viðtal
því það þurfti pall undir Unni Birnu og tökumanninn svo að hausarnir okkar kæmust báðir
í mynd. Stuðningsmannaliðið var Sunja, Selma og Kristján.

Þátturinn fer svo í loftið í Janúar á næsta ári
miðað við það sem stöðvar2 fólkið sagði þarna á staðnum.

Yfir og út.
Áskell


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 03:04:40 / muskat

Málaður út í horn...

Jæja, þá er komið að því góðir hálsar...:lol: Ég hef skráð mig í Bandið Hans Bubba og mun syngja lagið "Þú Ert Svo" Eftir Ný Dönsk á Neskaupsstað 24.Október næstkomandi! Vona að einhverjir geti séð sér fært um að koma og hvetja kappann!!

Kveðja,

Yðar einlægur,

Áskell


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 00:56:33 / muskat

Destenation Blönduós

þá er ég kominn í frí og ætlum við Sunja að kíkja á Blönduós til að hitta Unni og Munda, vinafólk okkar. Ætla að taka með mér golfsettið og athuga hvort ég geti ekki tínt nokkrum kúlum ;-)

Ég er loksins búinn að fá veiðikortið mitt og get ég þá loksins farið að huga að gæsunum.

Við Sunja erum komin með heimasíma, því gsm samband inni í íbúðinni er nánast ekkert :-/

Síminn er 482 2474

Hér eru úrslit skoðanakönnunar:

Semsagt Grolsch bar sigur úr bítum fyrir að vera versti bjórinn með 47% atkvæða

(b)æ caramba

Kveðja frá Egilsstöðum


» 11 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 23:36:56 / muskat

Jæja, þá er komið eitthvað til að blogga um ;-)

Við erum komin með íbúð á Egilsstöðum! Kaupvangur 53, íbúð í blokk á 4.hæð sem er 75 fermetrar á stærð. Íbúðin er með lyftu, Sunju til mikillar ánægju;-) En svo við snúum okkur að ennþá betri málum, þá erum við Sunja búin að trúlofa okkur með tilheyrandi hringum. Kveðja, Keli

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 10:23:06 / muskat

On the road again

Þá er síðasti dagur minn hjá Securitas runninn í garð og á morgun mun ég leggja land undir fjögur bíldekk á hinum eilífa Túring. Áfangastaðurinn er Reyðarfjörður og frá Selfossi er hægt að velja þrjár skynsamar leiðir:

1.Skeið, Þjórsárdalur, Sprengisandur, Ódáðahraun, Fiskidalsháls, Fagridalur=538 km.(Ok, tvær skynsamar leiðir)

1.Skeiðarársandur, Öxi, Þórdalsheiði=575 km.

2.Skeiðarársandur, Sunnfirðir, Fáskrúðsfjarðargöng=620 km.

Spurningin er svo hvor kosturinn er betri. Að þvælast upp á heiðarnar sem koma kanski misjafnlega vel undan vetri eða að þræða firðina sem er 45 km. lengri leið!?!

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 15:55:36 / muskat

Loftlaus Þingeyingur

Fór í heilsutékk 2.jan og í ljós kom að loftið hérna á suðurlandi er mun þynnra en heima á Húsavík eða það vil ég amk halda ;-) En fór til læknis í dag og endurtók prófið (spiro 2000) eða hvað það nú heitir og fékk sömu niðurstöðu. Læknirinn telur að þetta sé barasta eins og ég á að vera. Vegna þess hve hávaxin og grannur ég er og með langar lappir og lítinn búk að þá sé minna pláss fyrir lungun. Hann vildi samt vera viss og sendir mig því í röntgenmyndatöku á morgun. Þá er bara að vona að heilagur andi verði með mér, spiritu santus amen.

» 7 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 01:57:42 / muskat

Þá er jólagjafastússið byrjað !!!

Við Sunja erum búin að versla böns af jólagjöfum og eigum samt helling eftir, þá aðalega mín megin í fjölskyldunni. Búinn að hitta Sigurlaugu hjá Capacent ráðningarfyrirtækinu. Spjallaði létt, svaraði 100 spurningum í tölvu. Svo fékk ég símtal í dag (12.des) um að ég ætti að fara í viðtal hjá Alcoa á morgunn (13.des) kl.13:00 en kl.14:00 á ég svo fund með þjónustustjóra farandgæslu Securitas um launamál, þannig að ef illa fer hjá alcoa sem ég er EKKI að búast við!!! Þá get ég með góðu móti, bent honum á að ég eigi betra skylið fyrir þá vinnu sem ég er að vinna fyrir Skúritas. Ég get líka bent honum á að það sem hann sendi mér 20/5 2006 "Sendi þér hér með smá þakklætisvott fyrir vel unnin störf undanfarið. Þú hefur verið ómetanlegur fyrir Securitas bæði núna í vor og svo í desember þegar á reyndi. Bestu þakkir fyrir gott framlag." og með fylgdi gjafabréf á Lækjarbrekku fyrir tvo. Þetta hefði ég heldur viljað sjá sem launahækkun þó hugsunin á bakvið sé auðvitað mjög góð. Virðingarfyllst, Áskell āȌƠ翠Ϫ

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 18:31:14 / muskat

Sunja komin aftur á hækjur!

6. nóv. fór Sunja í fyrri hnéaðgerð sem heppnaðist ágætlega fyrir utan það að læknarnir réttu svo vel úr löppinni að það strektist á taug sem þeir svo löguðu tveim dögum seinna. Síðan þá hefur verið nóg að gera í þjónustu hennar hátignar.

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 06:56:19 / muskat

Tölvan mín risin upp úr veirusýkingu.

Varð fyrir því óláni að smella á link að mynd sem ég hélt að vinur minn væri að senda mér gegnum msn-ið enn það reyndist svo vera vírusardrusla og eftir það hef ég setið sveittur við það að hreinsa tölvuna við alls kyns vírusa, trójuhesta, adwerusa, backdoorusa og ég veit ekki hvað og hvað en allra vegana er ég búinn að uppfæra vírusvarnirnar og nú má ég ekki helst ekki standa upp frá tölvunni því þá fer allt á stað. Lét verða af því um daginn að sækja um hjá Alcoa á Reyðarfyrði svo nú er ég barasta að spila biðleikinn. Er að vísu skeptískur um ég fái svar en hver veit. Aldrei að vita nema að álið sé málið.

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 22:53:48 / muskat

Kominn heim á klakann

Þá er Noregsferð afstaðin og maður kominn heim á klakann. Þetta var mögnuð ferð og ég hef aldrei á æfi minni séð eins mörg tré!!! Það var undur og stórmerki ef maður rakst á tún án laufgaðra viðardrumba og ekki sást í eitt einasta fjall fyrir trjám. Þannig að í Noregi er ekki hægt að segja að fjarlægðin geri fjöllin blá. Þau eru einfaldlega græn þangað til þau hverfa úr augsýn. Við Sunja vorum í 5 daga að slæpast í Norge, aðallega í Horten og nágreni en eyddum síðasta deginum í Osló að túristast. En eftir allt saman held ég að þetta sé eitt stórt samsæri! Heia Norge.

Hef verið frekar latur að blogga en það stendur til bóta.


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 01:24:14 / muskat

Nýjasti Skandallinn !!!

Borist hefur til sagna að jólasveinninn hurðaskellir hafi gengið undir nafninu faldafeykir á sínum yngri árum. Það stafar af því að hann var fríðastur sveinanna og var duglegastur að feykja földum ungmeyjanna. Svo þegar hann varð gamall og krumpaður hættu ungmeyjunum að lítast á sveinka og þá fór hann að skella á eftir sér hurðum hvar sem hann fór !

» 6 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 10:00:10 / muskat

Smá fróðleikur um svefntruflarnir!

Góða nótt?

Hljómar sem eitthvað sjálfsagt – en er góð nótt sjálfsögð hjá öllum?

Góður og endurnærandi svefn öllum mikilvægur, en ekki öllum gefinn. Truflandi þættir eins og hrotur og öndunartruflanir í svefni geta haft veruleg áhrif á svefninn, líðanina næsta dag og svo heilsuna þegar til lengri tíma er litið.

Algengasta form öndunartruflunar í svefni er svokallaður kæfisvefn. Hann einkennist af öndunarstöðvun sem varir í 10 sekúndur eða lengur, 30 sinnum eða oftar yfir nóttina.

Þessi öndunarstöðvun verður vegna þrengingar í efri loftvegum sem hindrar það að loft berist til lungnanna. Við þetta verður líkaminn fyrir súrefnisskorti sem heilinn skynjar og gefur svo skilaboð um að létta á svefninum til þess að fylla lungun af lofti að nýju.

Kæfisvefn hefur víðtæk áhrif á heilsu og líðan. Hann hefur áhrif á hve vel viðkomandi hvílist og þ.a.l. hve vel hann stendur sig í leik og starfi og birtist m.a. í dagsyfju, skertri athygli, úthaldi, líðan og lund. Meðal annars hafa alvarleg umferðarslys verið rakin til þess að ökumaður hafi sofnað við stýrið vegna þreytu út af kæfisvefni. Kæfisvefn eykur líka til muna líkur á háþrýstingi og blóðrásartruflunum í hjarta- og heila.

Kæfisvefn er helmingi algengari hjá körlum en konum og greinist oftar hjá einstaklingum eftir fertugt. Ofþyngd/offita eykur líka verulega líkur á kæfisvefni. Áfengi og önnur slævandi lyf, mikil þreyta, stórir hálskirtlar, ofnæmi og kvef geta einnig haft áhrif.

Hrotur og kæfisvefn hafa ekki einungis áhrif á þann sem hrýtur, heldur getur verið hvimleið truflun fyrir maka eða aðra sem á þrufa að hlýða og verið bein ástæða þess að þeirra svefn er líka skertur.

Kæfisvefn er ástand sem ber að taka alvarlega. Að halda sér í góðu líkamlegu formi og kílóunum sem næst kjörþyngd skiptir miklu máli. Náist ekki viðunandi árangur með heilbrigðum lífsstíl, er sjálfsagt að ræða málið við heilmilislækninn, sem getur bent á aðrar leiðir til úrbóta. Meðferð við kæfisvefni, fer eftir hver orsökin er – t.d. að fjarlægja stóra háls-/nefkirtla, gefa ofnæmislyf eða tengjast öndunarvél sem eykur þrýsting á innöndunarlofti þegar farið er að sofa á kvöldin.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2